Mjólkurkanna - Regn

16.490 kr

Mjólkurkannan með mynstrinu Regn er mótuð úr hágæða postulíni og er mynstur könnunnar handmálað tvisvar með þykkri og glansandi 24 karata gyllingu.

Mjólkurkönnurnar eru tilvalin viðbót með Veltibollunum, en þær rúma hið fullkomna magn af mjólk fyrir kaffið þitt.

Til að varðveita fegurð gyllingarinnar, mælum við eindregið með að handþvo öll verk í Gylltu línunni, þar sem hún þolir illa ætandi uppþvottarefni og örbylgjuofna. Mjólkurkannan er glerjuð að innan til að auðvelda þrif eftir notkun.