Season kertastjaki - gylltur
Season kertastjakinn frá Georg Jensen er glæsileg og nútímaleg túlkun á hefðbundnum aðventukransi. Mjúkar, sveigðar línur og falleg 18 karata gullhúðun gefa honum hlýlegan og hátíðlegan svip sem setur einstakan blæ á jólaskreytingarnar.
Kertastjakinn er fallegur einn og sér en einnig er hægt að skreyta hann með greinum, laufum eða borðum og skapa þannig persónulega jólastemningu.
Season kertastjakinn er hannaður af danska hönnuðinum Mariu Berntsen, en jólakertastjakar hennar fyrir Georg Jensen hafa orðið órjúfanlegur hluti af jólahefðum margra heimila.
Kertastjakinn er úr ryðfríu stáli, húðaður með 18 karata gulli.

