Bloom skeiðar - 2 stk

10,290 kr

Glæsilegar Bloom framreiðsluskeiðar frá Georg Jensen, innblásnar af mjúkum og fallegum formum kirsuberjablóma.

Skeiðarnar sameina tímalausa hönnun og notagildi og henta einstaklega vel til að bera fram salat, grænmeti og annað meðlæti.

Bloom línan er hönnuð af danska hönnuðinum Helle Damkjær, sem er þekkt fyrir að sameina skandinavíska hönnun náttúruleg form og vandað handverk.

Skeiðarnar eru úr ryðfríu stáli með fallegri spegiláferð sem gefur þeim fágað og glæsilegt yfirbragð. Falleg hönnunarvara sem setur punktinn yfir i-ið á hvaða matarborði sem er.