Lyra toppstjarna gull - miðstærð
15,990 kr
Lyra toppstjarnan frá Georg Jensen er glæsilegt og tímalaust jólaskraut sem setur hátíðlegan svip á jólatréð. Stjarnan var fyrst kynnt árið 2025 og verður hluti af jólalínu Georg Jensen næstu árin.
Stjarnan er úr ryðfríu stáli, húðuðu með 18 karata gulli, sem gefur henni fallegan og fágaðan gljáa.
Með stjörnunni fylgir spírall sem auðveldar að festa hana á topp jólatrésins. Einnig fylgir band svo hægt sé að hengja hana upp í glugga eða loft.
Mál:
- Hæð: 22,5 cm
- Breidd: 17,5 cm
- Þvermál: 20,2 cm
Lyra toppstjarna gull - miðstærð

