Púði - Yaraba 60x60 cm

24.990 kr

Yaraba púðarnir eru langt frá því að vera hefðbundnir. Hver púði er unninn úr sterkum og silkimjúkum trefjum bananaplöntunnar — náttúrulegu efni sem fær nýtt líf eftir uppskeru í stað þess að fara til spillis.

Í Indlandi eru þræðirnir handunnir af svokölluðum „knitting moms“, konum sem með handverki sínu skapa sér betri framtíð. Þær fá þjálfun, öruggt vinnuumhverfi og tækifæri til að styrkja stöðu sína og samfélög sín, á meðan mikilvægar handverkshefðir eru varðveittar.

Yaraba púðinn sameinar fallega áferð, sjálfbærni og tímalausa hönnun sem gefur heimilinu hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð.

  • Efni: Bananatrefjagarn
  • Fylling: 100% fjaðrar 
  • Stærð: 60 x 60 cm
  • Má þvo í vél við mest 30°C
  • Má strauja við lágan hita
  • Ekki setja í þurrkara
  • Ekki nota klór