Púði - Yaraba 50x50 cm
Yaraba púðarnir eru sannarlega einstakir. Hver púði er unninn úr sterku og silkimjúku garni sem framleitt er úr trefjum bananaplöntunnar. Eftir uppskeru deyr plantan náttúrulega og það sem annars væri hent eða brennt fær nýtt líf í þessari fallegu hönnun.
Í Indlandi eru þræðirnir handunnir af svokölluðum „knitting moms“ — konum sem með handverki sínu byggja sér betri framtíð. Þær fá þjálfun, öruggt vinnuumhverfi og tækifæri til að styrkja bæði efnahag sinn og samfélög sín, á sama tíma og mikilvægar handverkshefðir varðveitast.
Púðinn sameinar náttúrulega áferð, fallega sögu og tímalausa hönnun sem skapar hlýlegt og notalegt yfirbragð á heimilinu.
- Efni: Bananatrefjagarn
- Fylling: 100% fjaðrir
- Stærð: 50 x 50 cm
- Má þvo í vél við mest 30°C
- Má strauja við lágan hita
- Ekki setja í þurrkara
- Ekki nota klór




