Handáburður - Spa of Iceland 300 ml
Handáburður Mýkjandi og nærandi handáburðurinn frá SPA of ICELAND gengur vel inn í húðina og verndar hana frá ofþornun með því að gefa henni góðan raka með sérvöldum, hreinum og náttúrulegum innihaldsefnum. Kókosolía stuðlar að jafnvægi á rakastigi húðarinnar og náttúrulegur plöntumassi mýkir húðina og gefur henni fallega áferð. Shea smjör nærir og mýkir þurra húð og hafþyrni hefur frumendurnýjandi áhrif og andoxunareiginleika. Ávaxtaþykkni stuðlar líka að vexti nýrra og heilbrigðra frumna sem mýkir húðina, dregur úr roða og ertingu og veitir vörn gegn skaðlegum útfjólubláum geislum. Notið kremið á hreina og þurra húð eins oft og þörf krefur, frískandi ilmur af íslenskum mosa og blóðbergi. .
