Gjafasett - Charente Rose
Cote Noire Gjafasett – Lúxus og Glæsileiki
Cote Noire gjafasettin eru stórglæsileg gjöf sem sameinar það besta úr vörulínu merkisins. Hver ilmur er innblásinn af sveitasælunni í Charente í Frakklandi.
Í gjafasettinu fylgir:
1x Rósahnappur (Rose Bud): Einstaklega raunveruleg blómaskreyting sem ilmar dásamlega. Með fylgja tvö lítil ilmglös sem hægt er að úða á blöðin til að dýpka og endurnýja ilminn.
1x 75g Kerti með kristalsloki: Handgert kerti úr blöndu af soja-, kókos- og býfluguvaxi. Kertin eru algjörlega án paraffíns, sem gerir þau að hollari og umhverfisvænni valkosti.
1x 100ml Ilmstrá (Diffuser): Dreifir ilminum jafnt um rýmið í allt að tvo mánuði. Stráin eru hönnuð til að draga í sig ilminn án þess að missa lit eða lögun.
2x 5ml Ilmúðar: Til að viðhalda ilmi rósarinnar
Charente Rose er fallegur og klassískur rósailmur sem fangar mýkt og náttúrulega fegurð nýútsprunginna rósa í frönsku sveitinni.
Côte Noire vörulínan sækir innblástur sinn til hins fallega Charente-héraðs í Frakklandi, þar sem náttúra, ró og hefðbundinn franskur lífsstíll mætast. Hver vara er hönnuð með það að markmiði að fanga einstaka stemningu franskrar sveitasælu í formi fágaðra og vandaðra ilmefna.
Línan sameinar glæsilegt útlit og hágæða innihaldsefni, þar sem áhersla er lögð á náttúrulega og mjúka ilmblöndu sem skapar notalega og hlýlega upplifun í rýminu.




