Baobab ilmstrá - Stones Lazuli
Glæsileg ilmstrá frá Baobab Collection sem sameinar einstaka hönnun og dásamlegan ilm. Marmaramynstrað glerið sækir innblástur í Lazuli-gimsteininn og ásamt glansandi svörtu loki skapar það einstaklega fallega og tímalausa hönnun.
Ilmurinn er heillandi blanda af mjúkum musk, krydduðum kardimommum og ferskum sjávarsaltstónum sem skapa hlýlega og fágaða stemningu á heimilinu.
Lazuli er ekki aðeins dásamlegur heimilisilmur heldur einnig glæsilegur skrautmunur sem setur lúxusblæ á hvert rými.
Notkun:
Setjið ilmstráin í flöskuna og leyfið þeim að draga í sig ilminn í 48 klukkustundir. Snúið pinnunum við einu sinni til tvisvar í viku til að viðhalda jafnri ilmdreifingu. Því oftar sem pinnunum er snúið, því sterkari verður ilmurinn.
Magn: 500 ml
Ilmur og ilmstrá fylgja með.



