Baobab ilmstrá - Bounkani

22,990 kr

Falleg ilmstrá frá Baobab Collection sem sækir innblástur í Bounkani-héraðið á Fílabeinsströndinni í Afríku. Fallegt mynstrið í gulum og gráum tónum er innblásið af tignarlegum baobab-trjám og afrískri menningu. Hönnunin sameinar hefðbundna listsköpun og nútímalegan glæsileika.

Ilmurinn er fáguð blanda af ferskum, grænum fíkjutónum, heslihnetulaufum og hlýjum sandelviði sem skapar notalega og heillandi stemningu á heimilinu.

Bounkani er ekki aðeins dásamlegur heimilisilmur heldur einnig glæsilegur skrautmunur sem færir heimilinu hlýju og karakter

Notkun:
Setjið ilmstráin í flöskuna og leyfið þeim að draga í sig ilminn í 48 klukkustundir. Snúið pinnunum við einu sinni til tvisvar í viku til að viðhalda jafnri ilmdreifingu. Því oftar sem pinnunum er snúið, því sterkari verður ilmurinn.