Baobab ilmkerti - Exlusivs Cyprium
Einstaklega glæsilegt ilmkerti sem sameinar fallega hönnun og heillandi ilm. Kertið er í fallegu gleri með spegilgljáandi koparáferð sem hleypir birtu logans í gegnum sig og skapar hlýlega og notalega stemningu.
Ilmurinn er blanda af hlýjum sandelviði, krydduðum pipar og mjúkum musk sem gefur rýminu djúpan, hlýlegan og örlítið dularfullan ilm.
Cyprium er sannkallað augnayndi sem setur lúxusblæ á heimilið, hvort sem kveikt er á kertinu eða ekki.
Notkun og umhirða:
Við fyrstu notkun skal leyfa öllu yfirborði vaxins að bráðna til að tryggja jafnan bruna. Styttið kveikina í um 6 mm fyrir hverja notkun og haldið kertinu fjarri dragsúgi. Skiljið aldrei logandi kerti eftir án eftirlits.



