Baobab ilmkerti - Bounkani
17,990 kr
Fallegt ilmkerti frá Baobab Collection sem sækir innblástur í Bounkani-héraðið á Fílabeinsströndinni í Afríku. Fallegt mynstrið í gulum og gráum tónum er innblásið af tignarlegum baobab-trjám og afrískri menningu. Hönnunin sameinar hefðbundið handverk og nútímalegan glæsileika.
Ilmurinn er blanda af ferskum, grænum fíkjutónum, heslihnetulaufum og hlýjum sandelviði sem skapar notalega og heillandi stemningu á heimilinu.
Bounkani er sannkallað listaverk sem sameinar einstaka hönnun og dásamlegan ilm og setur glæsilegan svip á hvert rými.


